Sunday, June 19, 2011

Mánuður liðinn frá aðgerðinni

Það er mánuður liðinn frá aðgerðinni og við erum búin að vera heima í hálfan mánuð. Tíminn er fljótur að líða þegar gaman er og hefur tíminn sem við höfum verið heima verið skemmtilegur og öðru vísi en við höfum vanist hingað til. Nú þarf að venjast því að vera ekki að dröslast með súrefniskútinn á eftir okkur og geta farið út að leika okkur og á rúntinn þegar vilji er fyrir hendi :)


















Björgvin hefur náð sér mjög vel, munur sést á honum eftir hvern dag og er hann miklu duglegri að borða en fyrir aðgerð. Einnig er hann sjúkur í prins póló og sést yfirleitt með sleikjó í annarri, þarf eitthvað að fara að taka á því :) Hann er miklu rólegri og virðist líða mun betur, unir sér við að leika sér og dunda sér.


Örið grær vel og nú þegar mánuður er liðinn frá aðgerðinni má hann vera í baði þannig að vatnið fari yfir skurðinn. Við fórum í heita pottinn í dag í fyrsta skipti í mörg ár.

Nú er bara verið að byggja hann upp líkamlega og andlega. Gefa honum lýsi og vítamín og nóg að borða og leyfa honum að hreyfa sig og æfa. Leika sér í sumrinu, gerist ekki mikið betra en það!

Kveðja,
Ásdís og Björgvin Arnar

15 comments:

Anonymous said...

Náttúrulega bara frábært allt saman :)

Bjarki

Anonymous said...

algjörlega stórkostlegt......
sigga maja

Anonymous said...

Snilldin ein, mikið er gott að hann sé að braggast vel, ná upp orkunni sinni aftur, hlakka til að hitta ykkur fljótlega :)

Anonymous said...

Snilldin ein, frábært að komast út og njóta sumarsins :)

Kv,
Hrannar

Anonymous said...

Æði!
Kv. Nína

Anonymous said...

Frábært að heyra!!
Knús,
Þórey Arna

Anonymous said...

algjört æði, þið eigið skilið að eiga sannkallað gleðilegt sumar. kv.maja

Sunna og magnús said...

Yndislegt að heyra!
Eigið þið nú virkilega gott sumar, ef einhver á það skilið þá eru það þið! :)

risaknús
Sunna og Magnús

Anonymous said...

Yndislegt að Björgvin er að braggast svona vel, það birtir alltaf á endanum:)

Ástarkveðjur,
Soffía & Antonía

Anonymous said...

Gott að heyra að allt gengur vel. Kveðja Guðrún Þóra

Anonymous said...

Æðislegt hvað gengur vel hjá ykkur :)
Kveðja frá Aarhus
Bylgja Dögg

Anonymous said...

Frábært að heyra að allt gangi vel :)
kveðja hin ókunnuga,
Kolbrún Helga

Anonymous said...

MEIRIHÁTTAR ELSKURNAR MÍNAR! :)

Knús og kossar

María Ósk (föður-frænka)

Linda Karen said...

Vá, æðislegar fréttir svo ekki sé meira sagt.
Þið hafið unnið fyrir þessu, það eitt er víst.
Knús frá okkur

Halldór said...

glæsilegar fréttir, gott að heyra að allt sé að komast á beinu brautina hjá ykkur.
kkv
Dóri og Ásgeir Örn