Það tók allan daginn að fá að vita hvort við gætum útskrifast í raun og veru og hvort við fáum að fara heim með fluginu okkar á laugardaginn en niðurstaðan var jákvæð! Við erum svo ánægð og þakklát fyrir að geta farið af spítalanum og fara heim án fylgdar og beint heim, þ.e. ekki með viðkomu á Barnaspítalanum. Það er nú meira en maður gat ímyndað sér.
Við drösluðumst með allt dótið okkar á gistiheimilið og fórum svo á TGI Fridays og héldum upp á það að vera útskrifuð og fengum okkur rif og ostaköku í eftirrétt. Björgvin var alsæll með fæðuvalið og borðaði með bestu lyst.
Björgvin verður 6-8 vikur að jafna sig í skurðinum og einnig mun taka tíma að jafna sig og byggja sig upp, hann er mjög máttvana og grannur. Hann er í raun eins og lítill fugl, þetta litla krútt sem ég á :)
Á morgun verður stefnan sett á lestarferð, gönguferð í garði og fá sér ís. Bara afslöppun í góða veðrinu og njóta þess að vera ekki á spítalanum.
Hamingjukveðja frá Boston,
Ásdís og Björgvin Arnar
28 comments:
Innilega til hamingju með þetta allt saman - mikið er gott að hugsa til þess að þið eruð á heimleið - húrra, húrra, húrra fyrir ykkur!!!!! kv. sigga maja og co.
Til hamingju með þetta :) hlökkum mikið til að sjá ykkur.
Svava, Aggi, Hulda og Stefán
Thvílk hamingja!
Kv
Nina
Jess! En yndislegt!
Innilega til hamingju með þetta og njótið dagsins :)
Risaknús
Sunna og Magnús
vúhú!! :D
Bjarki
Yndislegt að heyra, innilega til hamingju með þetta. Njótið dagsins og góða ferð heim :)
kveðja
Heiðrún og co.
Glæsilegt!!!
kv
Stebbi.
Frábært :) Til hamingju með þetta allt saman :D
Kveðja frá Árósum
Frábært yndislegt :)
Ester og co
Æðisgengið!
Njótið dagsins :)
Kv,
Hrannar
Frábærar fréttir til að fara með inn í helgina, góða ferð heim:-)
Bestu kveðjur Inga Huld
Innilega til hamingju með þessar frábæru fréttir! Vona að þið fáið gott veður síðasta daginn í Boston :) Góða ferð heim! Bestu kveðjur Hólla og Sif.
Vá hvað það er gaman að lesa þetta, ég er búin að vera netlaus í nokkra daga og þvílík stökkbreyting á fréttunum af ykkur á meðan.
SNILLD, duglegi snáði.
Til hamingju með þetta og velkomin heim :)
kv Sigga
Kæra Ásdís og Björgvin Arnar! Mikið er ánægjulegt að heyra hvað allt er að ganga vel nú og að þið skulu vera á heimleið. Njótið þess að vera í góða veðrinu. Hlakka til að sjá ykkur heima á Fróni. kveðja Asa C og Co
Elsku Ásdís mín,
mikið er gaman að heyra þessar frábæru fréttir. Það var yndislegt að fá að koma í heimsókn til ykkar og fá að sjá framfarir litla kúts.
Mig hlakkar til að fá að sjá ykkur í sumar elskurnar mínar.
Þúsund kossar frá Olg´ömmu <3
Bestu fréttir ever!!! Gòða ferð heim elskurnar
Æðislegt að heyra ! :)
Hlökkum mikið til að sjá ykkur.
Kv. Eyrún frænka og Co..
Júhúúúúúúúúú :) Þetta voru gleðifregnir í lagi c",)
Já nú er bara að hlúa að prinsinum og fita hann upp með kærleika og góðum mat :)
Kær kveðje, Óli frændi
Dásamlegt, til hamingju og góða ferð heim ;) Kveðja, Guðrún Þóra
Yndislegt:) Oh hvað er magnað að vita af ykkur á heimleið!!
Kv. Bylgja og co
Dásamlegar fréttir - ekki slæmt að fara brosandi inn í helgina með svona gleðifregnum. Ég held hreinlega að öllum klakanum hlakkar til að fá ykkur heim :)
kveðja
Lóa
Frábærar fréttir!
Mikið hlakkar okkur til að sjá ykkur:)
Soffía og Antonía",)
Frábærar fréttir. Til hamingju með það :-)
Yndilegt að heyra, til hamingju með þetta ;) eigið góða ferð heim.
KV. Vala May
Frábært að heyra að allt gengur vel og þið á leiðinni heim. Það verður gott að koma heim í íslenska sumarið og byggja sig upp :)
kveðja
Elín
Yndislegt að heyra að þið séuð útskrifuð og á heimleið. Hlakka til að heyra í ykkur og sjá :)
Bestu kveðjur,
Rakel
Æði
Frábærar fréttir. Það verður gott að komast loksins heim! Knús! Hanna María
Post a Comment