9:30 - Kyngjurannsókn (Swallow study)
10:00 - Nýr leggur (tekinn úr aftur seinni partinn)
11:00 - Lungnaskanni
13:00 - Augnlæknir
Út úr kyngjurannsókninni kom að Björgvin getur ekki kyngt venjulegum vökva eins og vatn og mjólk nema að það sé sett þykkingarefni í vökvann. Bólgurnar í hálsinum eru ekki farnar og honum svelgist hrikalega á þunnum vökva en sem betur fer nær hann að hósta honum upp aftur. Þetta mun lagast á svona tveimur vikum í viðbót, vonandi!
Catherine Allan læknirinn okkar og Julia |
Við ræðum við læknana um niðurstöðurnar úr lungnaskannanum á morgun en augnlæknirinn sagði okkur ekkert sem við ekki vissum nema að gleraugun hans Björgvins eru alltof sterk, hann er með +8 en á að vera með +4, sem eru ágætar fréttir.
Við Björgvin fórum á leikstofuna í dag og lékum okkur við lestirnar og að elda mat, eða réttara sagt að hella upp á kaffi, svo var stefnan tekin út um allt sjúkrahús á babú bílnum fræga. Björgvin var alsæll, vildi fara upp og niður í lyftunni og skoða lífið. Hann er þó ekki búinn að fá fullan kraft ennþá og er óstyrkur þegar hann gengur, það kemur á næstu dögum.
Stefnan er svo tekin á að hafa rólegan dag á morgun og á fimmtudaginn verður kaloríurannsókn og svo megum við líklegast fara af spítalanum, jeij! Það er eiginlega ótrúlegt að vera farin að sjá fyrir endann á þessu og nálgast það að komast heim.
Maraþonkveðja,
Ásdís og Björgvin Arnar
11 comments:
Frábært ad sjá ad hann er ad braggast og endilega farid ad drífa ykkur heim med sumarid sem allir eru ad tala um :)
Knús
Nína
Góðar fréttir!! Leggið nú allan kraft í bataferlið svo þið komist heim sem fyrst!
Knús frá Svíþjóð
Ótrúlegt og náttúrulega endalaust frábært að þetta sé allt að koma hjá ykkur maraþonhetjunum :)
Bjarki
frábært að heyra
knús á ykkur
kv
Heiðrún
Frábært að sjónin sé betri og að þið fáið að koma heim fljótlega. Hlakka til að hitta ykkur,
bestu kveðjur Inga Huld
Allt að gerast... Alveg dásamlegt að sjá ykkur vera á svona góðu róli og líka svo gott að vita að þið eruð með besta fólkið í þessu með ykkur.
Kram á ykkur - ótrúlega duglega fólk!!
Þórey Arna
Gaman að sjá hvað gengur vel hjá ykkur hetjunum, standið ykkur rosalega vel! :)
Kv,
Hrannar
Frábært að sjá mynd af honum leika sér :) gott að þið eruð farin að sjá fyrir endan á þessu, já verður gaman að sjá hvort eitthvað breytist hjá honum með sjónina ef hann er með alltof sterk gleraugu og fær rétt.
Mikil mikil hamingja :) allt að koma Kveðja Ester, Hjalti, Sara og Alexander
Elsku þið.. yndislegt að lesa svona góðar fréttir.. elsku kallinn hvað hann er alltaf sætur og duglegur. Hann er heppinn að eiga svona góða mömmu :)
Risaknús á ykkur og vonandi komið þið heim sem fyrst
Kv. Inga Birna
Brilljant. :)
Þið eruð að massa þetta.
kv
stebbi
Glæsilegar fréttir þannig að það stefnir allt í það að þessi Boston ferð verði styttri enn sú sem við hittum ykkur í ;)
Batakveðjur af skerinu
Post a Comment