Björgvin er búinn að vera í góðu yfirlæti hjá ömmu sinn og afa og Allý á meðan mamma hans hefur verið að vinna, við tókum þá ákvörðun að setja hann ekkert á leikskólann strax þar sem búið er að ákveða næstu aðgerð á öndunarveginum og verður hún þann 4. mars hér á Íslandi. Skurðlæknirinn ætlar að koma hingað og græja þetta, okkur til mikillar gleði.
Nói kom til okkar og var hjá okkur alla afmælishelgina. Bræðurnir eru náttúrulega dásamlegir saman og það var mikið gaman hjá okkur.
Á meðan mamman var að baka þá hjálpaði Nói og Björgvin við að hreinsa skálarnar :)
Við Nói höfðum það notalegt saman eftir að Björgvin var sofnaður, horfðum á ævintýramyndir og borðuðum nammi, ekta kósýkvöld hjá okkur.
Veisluborðið með Car's súkkulaði köku.
Björgvin var nú dálítið feiminn með allt þetta fólk í kringum sig og leist bara ekkert á þetta á tímabili. Hann hefur verið svo mikið heima, í svolítilli einangrun. En hann vandist þessu og var mjög ánægður með allar gjafirnar sínar, vildi gefa hverri og einni tíma áður en næsta var opnuð.
Veislugestirnir.
Takk kærlega fyrir drenginn, hann var alsæll með afmælið sitt.
Afmælisknús
Ásdís og Björgvin Arnar
2 comments:
Glæsilegt að heyra að hann hafi verið glaður með daginn. Þið eruð bara langflottust og þú átt hrós skilið Ásdís mín, fyrir dugnað, kraft og þolinmæði. Stórt knús til ykkar. Kær kveðja, Fjóla og skvísur
Til hamingju með krúttið þitt Ásdís, og gangi ykkur vel á fimmtudaginn
Post a Comment