Björgvin talaði ekki um annað en að komast heim í bað á leiðinni heim í bílnum og auðvitað fékk hann þá ósk uppfyllta. Hann er með sár í andlitinu eftir límið sem hélt súrefnisgleraugunum á honum, en alltaf er hann jafn mikil dúlla þetta barn, það verður sko ekki frá honum tekið.
Amma og afi voru hjá okkur í mat, sem amma eldaði auðvitað :) Hérna eru þau með prinsinn sinn.
Við Björgvin þökkum öllum þeim sem sýndu okkur vináttu og umhyggju á þessum tíma, margir komu til okkar í heimsókn og margir voru í sambandi við okkur. Það er sko gott að eiga góða að!
Næsta mál á dagskrá er að halda upp á þriggja ára afmælið hans Björgvins Arnars, hann á afmæli á morgun en veislan verður haldin síðar, við verðum aðeins að jafna okkur fyrst.
Ásdís og Björgvin Arnar
8 comments:
Allt annað að sjá hann svona nýþveginn ;)
Já, hann er sko bara dúlla!
Hmm, gleymdi að kvitta!
Og auðvitað til hamingju með afmælið!
Kv. Nína
Gott að þið séuð komin heim elskurnar!!
Innilega til hamingju með daginn elsku Björgvin Arnar:) Hafið það sem allra best... gott að vita af ykkur heima!
Afmæliskossar úr Selvaðinu
Bylgja og co
Til hamingju með afmælið elsku besti Björgvin Arnar!
kveðjur úr Kópavoginum
Sigga Maja, Haukur, Kári og Sunna
Sá er flottur í baðinu sínu! :)
Það er svo gott að vita af ykkur heima eftir þessa erfiðu útilegu, þið eruð ótrúlegar hetjur og ekki síst þú sem öll vinnan og ábyrgðin lendir á!
Til hamingju með afmælið frá okkur!
Bjarki og fjölsk
Til lukku með að vera kominn heim í kotið og með 3ja ára prinsinn í gær.
kv .Inga Birna og co.
Innilega til hamingju með þriggja ára afmælið!!! Og ekki síður til hamingju með að vera komin heim!!! Langþráð get ég rétt ímyndað mér.
Þarf endilega að fara að slá á þráðinn, geri það áður en langt um líður!
P.s. Ásdís, það er saumó hjá mér í næstu viku, kemstu???
Knús og kossar frá Bergshamra
Linda og co
Til hamingju með 3. ára afmælið :)
Kær kveðja,
Kristrún, Aggi, Andri og kristrófer
Post a Comment