Það er alveg kominn tími á að skrifa nokkrar línur hér. Við Björgvin Arnar erum ennþá á spítalanum, búin að vera hér í tæpar tvær vikur og ekkert bólar á heimferð ennþá.
Björgvin þarf súrefni ennþá þó svo að sýkingin í lungunum sé farin þá er mikið slím ofan í honum og virðist vera mjög fast og erfitt að losna við það. Það koma sjúkraþjálfarar þrisvar sinnum á dag að banka hann til að reyna að losa slímið og svo er um að gera að leyfa honum að vera á ferðinni til að eitthvað losni af sjálfum sér.
Björgvin er búinn að vera duglegur að taka nokkur frekjuköst um helgina og við það losnaði fullt af slími. Læknirinn sagði að ég þyrfti að vera mjög ströng við hann næstu daga til að ná fram mörgum frekjuköstum í viðbót og þá gætum við verið á leiðinni heim innan skamms :)
Toppurinn á tilverunni hjá okkur núna er að fara fram í matsal þar sem dótið er og Björgvin hleypur um og mamman með súrefniskútinn á eftir honum :)
Vonandi fer að koma að heimferð fljótlega.
Við þökkum öllum vinum og vandamönnum sem hafa komið og heimsótt okkur, það er mikið metið!
kram
Ásdís og Björgvin Arnar
Monday, January 25, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hæ sætu mæðgin
þetta hlýtur að fara að koma hjá ykkur og það er nú ansi skondið að það sé bara kostur að fá frekjuköst..sendum ykkur góðar hugsanir
Elsku Ásdís mín. Það hefur sko alveg farið framhjá mér að Björgvin Arnar væri á spítala - þó hafði ég séð að hann væri búinn að vera veikur.
Vonandi fer litla skinnið að hressast.
Knús, Lilja Björg.
Post a Comment