Það er ansi langt síðan það var bloggað seinast enda erum við mæðgin búin að standa í ströngu, bæði í aðlögun á leikskóla og svo núna seinast veikindum.
Björgvin er með lungnabólgu á háu stigi og getur ekki án súrefnis verið. Við höfum verið á Barnaspítalanum í fjóra daga núna og sjáum ekki fyrir endann á því ennþá. Hann losnar við sýklalyf í æð á morgun þannig að þá hlýtur hann að vera allur að koma til.
Björgvin stjórnar öllu með harðri hendi þó veikur sé. Hann var orðinn þreyttur áðan og sagði þá við ömmu sína og afa "afi, amma, bæ". Já þau voru alveg stórmóðguð :)
Við erum búin að fá marga góða gesti hingað á spítalann, það er sko gott að eiga góða að. Við getum ekki beðið að komast heim og Björgvin gerir ekki annað en að biðja um að fá að fara í bað, hann elskar það og finnst hann ábyggilega frekar klístraður eftir þetta baðleysi undanfarna daga.
Að öðru, við erum búin að koma okkur vel fyrir í íbúðinni okkar og Björgvini gekk vel að aðlagast á leikskólanum. Hann var búinn að borða vel og faðmaði konurnar þegar hann kvaddi eftir daginn, algjör prins, heillaði þær strax upp úr skónum eins og honum einum er lagið.
Kveðja
Ásdís og Björgvin Arnar
Saturday, January 16, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Norðurvallagengið óskar prinsinum góðs bata!
Kv. Hrund
Vonandi batnar honum sem allra fyrst!
Bestu kveðjur,
Linda & familj i Sverige
Batakveðjur frá okkur mæðgum. Risa knús á ykkur. Kv. Fjóla og co
Post a Comment