Seinustu helgi þá skelltum við okkur í Junibacken. Björgvin fannst ekkert smá gaman og mest gaman er að fara í rennibrautina sem kemur úr einu húsinu, svo gaman að hann fer óteljandi ferðir og mamman horfir á og klappar yfir dugnaðinum.
Við fórum svo í dótabúð og þá byrjaði suðið um að kaupa dót, það var sko skoðað vel og vandlega allt í hillunum og svo valdi hann sér Fisher Price kalla og stakk þeim undir handlegginn og benti mömmu sinni á að koma og borga fyrir dótið. Hann er sko lítill herforingi strákurinn og mamman hlýddi auðvitað :-\ Segiði mér, hvernig er eiginlega hægt að neita honum nokkurn hlut??
Kram
Ásdís og Björgvin Arnar
4 comments:
Sætu sætu auðvitað er ekkert hægt að segja nei við litlu duglegu hetjuna með stóru augun og löngu augnhárin hver stenst slíkt ;)
knús og kram Ester og Sara
Flottar myndir af ykkur fallegu mæðginum.
Hjartanlega til hamingju með daginn í dag Ásdís
Nei, hvað er það nú? :)
Kv. Nína
Innilega til hamingju með daginn Ásdís mín:)
Nei það er bara ekki hægt að neita svona duglegum strák! Oh hann er svo yndislegur:)
Eigið góðan dag elskurnar!
Knús héðan úr Selvaðinu (Bylgja og co)
Post a Comment