Nú er verið að reyna að venja litla kútinn á gleraugun, það gengur svona upp og niður, hann getur gleymt sér í langan tíma með þau en svo vill hann ekki sjá þau þess á milli. Nú eru liðnir fjórir dagar og maður hefði haldið að nú fyndist honum betra að vera með þau en ekki. Þetta er smá snúið þegar krílin geta ekki tjáð sig almennilega. Hér koma nokkrar myndir af honum, myndasyrpa af uppáhalds módelinu mínu :)
Hér er Björgvin með húfuna hans afa síns:
Jeminn, prófessorinn! :)
Svo eru tvær myndir af krúttunum, Allý og Björgvini í hláturskasti:
Gaman hjá þeim :)
Björgvin fer ekkert á leikskólann strax, sjáum til um miðja viku, það þarf að gefa honum púst yfir daginn, úr vél sem við höfum bara hér heima, til að verja hálsinn. Annars er hann mjög hress og kátur, ég man varla eftir því að hann hafi verið svona kátur áður, liggur alveg í hlátursköstum, sem eru svo smitandi að við getum ekki annað en hlegið með.
Nú er Latibær alveg í uppáhaldi, Björgvin var alveg búinn að fá nóg af Stubbunum á spítalanum og nú er það Glanni glæpur sem ræður ríkjum eða Nanni eins og Björgvin ber það fram :)
Gotti afi er ennþá hjá okkur og koma fleiri myndir næst.
Knús og kram
Ásdís og Björgvin Arnar
Sunday, November 29, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Hann er nú ekkert eðlilega mikið krútt drengurinn. Og líkist mömmu sinni meir og meir! Kv. úr snowy kef! hh
Dásamlegar myndir.. gangi ykkur vel. Knús í kotið - kv. Fjólan
Æðislegar myndir!
Kv. Nína
Frábært að heyra!! Og meiriháttar sjarmör með gleraugun! Alger gullmoli litli snúðurinn
Hann er bara æðislegur með gleraugun :)
Knús til ykkar
hlökkum til að fá ykkur heim
Kv.
Svava, Aggi og Hulda María
hann er nú meiri knúsu-rúsínan og ekkert smá flottur með nýju gleraugun. Gangi ykkur vel og hlakka til að sjá ykkur
kv
Heiðrún
Post a Comment