Wednesday, January 1, 2014

Árið er liðið ...

Nú er árið 2013 liðið. Þegar ég lít til baka þá veit ég hreinlega ekki hvað ég á að segja um þetta ár. Ef hægt er að tala um að eitthvað sé ljúfsárt þá var þetta ár þannig. Árið sem hamingja og sorg mættust.

Í febrúar þá fékk ég staðfest að Björgvin væri með þann sjúkdóm sem læknarnir héldu eftir mikla yfirlegu. Að fá þessa staðfestingu var mikið sjokk, ekki þessi léttir að vita loksins hvað væri að eins og fólk sagði oft að væri. Líklegast var það vegna þess að útlitið var ekki gott og þessi vitneskja staðfesti að ekkert væri í raun framundan hjá Björgvini mínum. Í öll þessi ár var ég alltaf að bíða eftir að ástandið myndi batna, annað hvort hann myndi fá betri heilsu eða niðurstaða sjúkdómsgreiningar væri þannig að eitthvað væri hægt að gera fyrir hann. Annað var óhugsandi og ósanngjarnt.

Á sama tíma og ég fékk þessar hræðilegu fréttir að Björgvin minn væri með skertar lífslíkur, þar sem 50% barna með þennan sjúkdóm lifa ekki lengur en 5 ár, þá kom Eyrún Arna í heiminn. Það er eiginlega ólýsanlegt að upplifa svona hamingju að fá barn í fangið á meðan hinu barninu er ekki hugað líf.

Næstu mánuðir voru erfiðir. Heilsa Björgvins fór versnandi og var sumarið þannig að ég hugsaði stundum með mér að þetta gæti ekki gengið lengur. Þá er nú mikið sagt. Þrátt fyrir sjúkdómsgreininguna þá bjóst ég aldrei við að endalokin myndu koma svona fljótt. Ég bjóst samt ekki við að hann myndi vera hjá mér allan veturinn en þegar það fór virkilega að halla undan fæti þá gerðist það hratt.

Seinustu dagarnir voru þannig að honum var farið að líða mjög illa og átti mjög erfitt með að draga andann. Þetta á ekkert foreldri að þurfa að ganga í gegnum eða horfa upp á. Þegar ástandið er orðið það slæmt að maður hugsar sér að dauðinn sé ekki alltaf verstur þá er það slæmt.

Tíminn frá andláti Björgvins hefur verið skrítinn. Ég hef þurft að læra að lifa lífinu í allt öðru mynstri en ég er vön seinustu ár. Söknuðurinn er mikill. Stundum á ég erfitt með að átta mig á því að ég eigi aldrei eftir að halda honum í fangi mínu og segja honum hve heitt ég elska hann. Óraunverulegt. Minningarnar lifa og þær eru margar dásamlegar og ómetanlegar.

Í gær þá kvaddi ég þetta ár. Þetta ár sem ég eignaðist barn og missti barn. Einu tímabili í mínu lífi er lokið og annað er hafið. Ég kvaddi þetta ár með blendnum tilfinningum með mínum bestu og dýrmætustu.


























En tek jafnframt á móti nýja árinu með hlýju og ást í hjarta. Björgvin hefði viljað að mömmu sinni og systur liði vel og hjá okkur væri mikið um gleði og hlátur eins og einkenndi okkar samskipti og líf.

Ást til ykkar allra og munið að njóta hvers dags með þeim sem ykkur þykir vænt um.

Ásdís og Eyrún Arna

5 comments:

Óli Örn said...

Megi kærleikur og gleði umvefja ykkur mæðgur allar stundir á þessu nýja ári.
Megi minning einstaks drengs lifa í hjarta og sál.
Kærar kveðjur frá okkur fjölskyldunni :)

Anonymous said...

Elsku Asdís
mjög vel að orði komist. Skrýtið ár 2013 og þvílík himnasending sem Eyrún litla er og stórt skarð sem Björgvin skildi eftir sig.

með tárin í augunum, risaknús á ykkur og megi 2014 vera fullt af gleði og hamingju sem styrkir ykkur í sorginni sem aldrei hverfur.

Risaknús Ester

Solla said...

Elsku Ásdís, það er erfitt að lesa þetta texta en samt er hann svo fallegur hjá þér. Megi árið verða þér gott og verði ár sem færir þér huggun og gleði þrátt fyrir missinn þinn og ykkar.

Lilja Björg said...

Með tár í augum yfir bæði gleði og sorg óska ég ykkur mæðgum gleðilegs og hamingjuríks árs.
Knús & kossar, Lilja Björg.

Tinna said...

Óskaplega er þetta fallega skrifað hja þér. Maður fær kökk í hálsinn. Kveðja Tinna