Sunday, April 10, 2011

Tölvusneiðmynd lokið

Seinasta fimmtudag fórum við á Barnaspítalann til að taka tölvusneiðmynd af Björgvini. Við mættum rétt fyrir hádegi og var leggur settur í hann fyrir skuggaefnið og svo var honum gefið kæruleysilyf til að hann myndi sofna. Í svona myndatöku þarf maður að vera grafkyrr og svona litlir grallarar geta það ekki sjálfir.


Við fáum svo út úr þessu á þriðjudaginn. Gylfi læknir á pantað símtal við lækninn okkar í Boston til að ræða niðurstöðurnar. Að hans sögn þá er ekki spurning um hvort heldur hvenær við förum til Boston.

Það er mikill léttir að það sé verið að skoða þetta allt saman, reyna að komast til botns í af hverju hann þarf á súrefni að halda og af hverju hann sé svona viðkvæmur, að hann megi ekki fá kvef án þess að þurfa á súrefni að halda.



Á leikskólanum Holti er frábært starfsfólk og komu tveir starfsmenn á deildinni hans Björgvins að heimsækja hann um daginn. Það var mikill spenningur áður en þær komu og ætlaði hann sko að sýna þeim allt dótið sitt og herbergið sitt. Magga og Ragnheiður komu og sungu með honum og léku við hann í dágóða stund. Meiriháttar að halda tengslum við leikskólann og líka að brjóta upp daginn hans hér heima.



Bjarki kom til okkar í heimsókn líka, því miður ekki með stelpurnar sínar vegna smithættu, en Björgvin var ekkert smá ánægður, búinn að vera að spyrja um hann í marga daga. Það var leikið úti í skúr í boltaleik og fleira, svaka stuð!

Olga amma og Nói komu til okkar í gær, mikið var gaman að sjá bræðurna saman og ótrúlegt hvað hann man vel eftir ömmu sinni. Olga ætlar svo að koma til okkar aftur í vikunni, áður en hún fer aftur út til Ítalíu.

Kveðja úr Svölutjörn,
Ásdís og Björgvin Arnar

2 comments:

Anonymous said...

Það var svo gaman að sjá litla stuðboltann, montinn að eiga svona snilling sem vin! :)

Bjarki

Anonymous said...

ég fann link á síðuna frá Fb:)

Það er mikið lagt á litla skinnið en ótrúlega er hann duglegur og þú líka Ásdís! Vonandi losnar hann við súrefnið sem fyrst.

Vona að það sé í lagi að ég fylgist með ykkur hérna:)

Bestu kveðjur

Jóhanna Boga og Davíð þór