Á morgun eru komnar 10 vikur sem Björgvin hefur þurft á súrefni að halda allan sólarhringinn. Engin breyting hefur orðið á þessu og er það áhyggjuefni.
Við fórum til læknisins í vikunni var þá tekin lungnamynd og blóðprufur. Í ljós kom lítil veirumerki í lungum þannig að hann var settur á sýklalyf en blóðprufurnar voru eðlilegar. Læknar lögðu einnig til að hætt verði að gefa honum vaxtahormón vegna aukaverkunar sem getur verið bjúgmyndun og væri kannski ástæðan fyrir því að hann er ennþá að metta svona illa.
Næst á dagskrá er tölvusneiðmynd og verður hún gerð 7. apríl.
Læknar hafa áhyggjur af þessu að hann sé ennþá á súrefninu og einnig hvað hann er alltaf viðkvæmur, það er nú ekki eðlilegt að þurfa alltaf á súrefni að halda þegar hann fær kvef. Líklegt er að við verðum send til Boston í frekari rannsóknir. En það á eftir að koma í ljós á næstu vikum.
Baráttukveðjur úr Svölutjörninni,
Ásdís og Björgvin Arnar
Sunday, March 27, 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Baráttukveðjur
Bjarki
hugsa til ykkar... knús. Ragga
Og fleiri baráttukveðjur!!
Tata,
Þórey Arna
Elsku Ásdís mín og Björgvin, ég vona innileg að þetta fari nú að koma! Hugsa til ykkar.
Baráttukveðjur og knús frá Svíþjóð!
Rakel
Fleiri baráttukveðjur frá Sverige!
Linda, Sindri og co.
Post a Comment