Tuesday, March 22, 2011

Komnar 9 vikur í súrefni

Nú eru komnar 9 vikur sem Björgvin þarf á súrefni að halda öllum stundum sólarhringsins. Þetta er búið að vera langt tímabil og þá sérstaklega þar sem engin framför hefur verið í langan tíma.

Hann veiktist 17. janúar og vorum við 3 vikur á spítalanum og svo núna erum við búin að vera 6 vikur heima með súrefnið.

Við erum að fara á spítalann í rannsóknir í dag, það sem fyrir liggur í dag er að taka blóðprufu og skoða hann og svo á að panta í tölvusneiðmynd af lungum og barka. Þegar niðurstöðurnar liggja fyrir þá verða þær sendar til Svíþjóðar til að fá þeirra álit og svo verða næstu skref ákveðin. Það verður alla vega að skoða þetta betur og reyna að gera eitthvað meira fyrir hann, ekki getur hann verið svona endalaust.


















Björgvin er orðinn þreyttur á að hafa snúruna alltaf á eftir sér og vera fastur inni og mega ekki hitta nein börn, þetta tekur á hann og okkur öll sem hugsum um hann á hverjum degi.  Við vonumst eftir bata og betri líðan hjá honum á næstu dögum og vikum.

Baráttukveðjur
Mæðginin í Svölutjörn

3 comments:

Anonymous said...

Gangi ykkur rosaleg vel í dag kæru!! Ég sendi ykkur mína allra bestu strauma.

Æðislegt að heyra með Kolaportið og hve vel gekk - það er ómetanlegt að eiga góða að.

Kærleiksknús,
Þórey Arna

Anonymous said...

Þetta er búið að vera langt en með hverjum degi sem líður er styttra í að þið komist yfir þennan erfiða hjalla á leiðinni að betri líðan og varanlegum bata kæru hetjur!

Frábær mynd af ykkur krúttunum! :)

Bjarki

Sunna og co said...

Æj úff hvað þetta er búið að vera langt hjá ykkur :(
Vonum innilega að Björgvin hetja losni við súrefnið sem fyrst.

Risaknús, við söknum ykkar hér í Sverige!