Thursday, March 10, 2011

Á áttundu viku

Nú er aldeilis kominn tími á nýtt blogg, fréttir af litla gaurnum mínum. En það er svo sem ekki mikið að frétta, súrefnið er hér ennþá og þarf hann á því að halda allan sólarhringinn. Það er farið að glitta í smá örvæntingu en ég reyni að bæla hana niður og halda bjartsýninni og voninni á lofti að þetta fari nú allt að koma hjá prinsinum.

En lífið heldur áfram sinn vanagang, ég er að vinna og mamma og Allý hjálpa mér að passa. Björgvin fór til pabba síns, sem kom heim, seinustu helgi og helgina þar á undan og fannst honum það mjög gaman. Ég nýtti tímann í að hitta góða vini og sofa, ekki vanþörf á!

Björgvin er samt hress að öðru leiti og leikur sér og syngur. Er stundum leiður á að geta ekki farið neitt út en hann er ótrúlega góður og nægjusamur miðað við allt sem gengur á. Þetta jafnaðargeð og harkan í þessum krílum er ótrúleg, fólk gæti nú stundum tekið þau til fyrirmyndar.

En við erum samt sem áður heima hjá okkur og verður það að kallast gott, ekki vildi ég hafa verið á spítalanum í tæpar 8 vikur, þær þrjár sem við vorum var alveg nóg. Þakklát fyrir að geta verið heima og að við getum sofið í okkar rúmi.

Engar myndir núna, bara næst! :)

Baráttukveðjur úr Svölutjörn,
Ásdís og Björgvin Arnar

3 comments:

Anonymous said...

Þið eruð bæði engum lík með ykkar jákvæðni og hörku í gegnum þetta allt, ótrúleg mæðgin! :)

Nú fer þetta allt að koma hjá þeim litla.

Bjarki

Anonymous said...

Já það er Ótrúlegt hvað krakkar hafa mikla þolinmæði og geta staðið upp aftur og aftur þó þau detti :)

Við Sara sitjum hér með kósýföstudagskvöld og sendum ykkur aukaskammt af bjartsýni og þolinmæði :)

Knús Ester

Anonymous said...

þið eru svo dugleg :) vonandi fer þetta að koma - knús og koss. Ragga