Seinustu þrjá daga hefur hann verið alveg úrvinda og slappur, varla búinn að tala neitt og vill bara liggja í rúminu. Hann er máttfarinn og borðar varla neitt.
En í dag hefur hann talað smá og náði ég að setja hann í bað sem hressti hann aðeins við. Vonandi fer þetta að batna og vera einungis upp á við hér eftir. Hann gat verið án súrefnis í 30 mín í morgun svo að þetta er eitthvað í áttina.
Margir góðir vinir og ættingjar hafa komið til okkar og veitt okkur félagsskap, aðstoð og komið með mat. Má þar nefna mömmu mína og pabba, Óla bróðir, Bjarka, Rakel, Ester, Röggu, Hönnu Maríu, Nínu og Hólmar (vonandi er ég ekki að gleyma einhverjum!). Þetta bjargar okkur alveg að fá þennan stuðning, já eins og ég nú oft sagt þá er gott að eiga góða að, sérstaklega þegar ég ber ábyrgðina og stend allar vaktir ein.
Rakel vinkona mín kom með mat núna í hádeginu, sjáið kræsingarnar :)
Mmmm þokkalega gott að fá svona heimsókn :)
Kærar kveðjur frá barnaspítalanum.
Ásdís og Björgvin Arnar
4 comments:
Sendum bestu batakveðjur úr Kef.
Hrund og co.
Vonandi fer Björgvini að batna hratt, ann er nú algjör hetja og mér finnst hann kvarta ótrúlega lítið m.v. sjúkrahúslegu og lyfjagjafir ótrúlega sterkur og duglegur strákur.
Knús og kram frá okkur í Blásölum
Ester, Hjalti, Sara og Alexander
Oh, vona að litla hetjan snúi fljótt og vel á þessar andstyggðar lungnabólgu-bakteríur! Hugsum til ykkar, batakveðjur frá Hóllu og Sif.
Bestu kveðjur til ykkar frá Svíþjóð. Björgvin hlýtur að drífa sig að hrista lungnabólguna af sér fyrir afmælið sitt.
Post a Comment