Wednesday, January 26, 2011

Mig langar í mat!

það er ekkert smá yndislegt að heyra þessi orð! Algjör draumur :) Sérstaklega eftir seinustu daga sem eru búnir að vera mjög erfiðir.

Björgvin var mjög slæmur í önduninni á mánudaginn, fórum í lungnamyndatöku og kom í ljós að hann var með mikinn vökva í lungunum og fékk auka vatnslosandi skammt, og reyndar fær hann auka svoleiðis skammt á hverjum degi núna.

Í dag er fyrsti dagurinn sem er betri og honum líður betur. Ég fékk alla vega bros frá honum og hann gekk 20 skref, hann er ekki búinn að vilja ganga í tvo daga, og svo borðar hann betur.

Hann fór í bað áðan og er allur hreinn og fínn og líður vel hjá mömmu sinni.
























Ég var að grínast í honum áðan og hann sagði, "mamma, hættu þessu, þetta er ekkert fyndið!" - hahaha hann hefur greinilega alveg misst húmorinn í veikindunum, því að betri brandara hef ég aldrei sagt ;)

Margir góðir gestir hafa komið til okkar seinustu daga, meðal annars komu amma og afi og Andrea Björt, Ester og Hjalti, Hrund og dætur, Tinna, Hólmar og svo Bjarki. (Ég biðst afsökurnar ef ég gleymi einhverjum :)

Kærar kveðjur til ykkar,
Ásdís og Björgvin Arnar

3 comments:

Anonymous said...

Gott að prinsinum líður betur Risaknús :) Ester og co

Anonymous said...

Aldeilis gott merki að hann sé orðinn nógu hress til að nenna að vera hreinskilinn við þig! ;) Bjarki

Anonymous said...

Það er svo hressandi að fara í bað! Æðisleg mynd af honum :)
Knús, Nína