Mikill spenningur er í gangi yfir þessu og alltaf verið að spyrja hvenær boltaskólinn sé eiginlega. Aggi er náttúrulega líka í algjöru uppáhaldi, það er alveg ótrúlegt hvað Björgvin er ánægður með hann frænda sinn, eins og öll önnur börn eru líka, þannig að það er kannski ekkert ótrúlegt :)
Björgvin er frekar hress núna, ekki alveg nógu góður í önduninni (með ræmu í hálsinum og stynur smá) en nógu hress til að fara á leikskólann og þvílík hamingja hjá honum, hann er svo ánægður með krakkana og fóstrurnar. Allt verður svo miklu betra þegar hann kemst á leikskólann. Hann er alltaf fyrir hádegi á leikskólanum og hefur hann ekki þrek til að vera lengur, hann er mjög þreyttur og hvílir sig vel þegar hann kemur heim.
Síðast en ekki síst þá er hann duglegur að borða á leikskólanum, það má ekki gleyma því! :-D
Kveðja úr Svölutjörn
Ásdís og Björgvin Arnar
2 comments:
Hann er auðvitað duglegasti töffarinn norðan Alpafjalla!!
Múttan er ekkert slor heldur :)
kveðja Lóa
hann tekur sig vel út "í markinu" með boltann! Frábært að sjá framfarirnar hjá drengnum og það er ekki nema von að hann þurfi að hvíla sig inn á milli enda átökin mikil.....vonandi sjáumst við á miðvikudagskvöld, kv. smt
Post a Comment