Thursday, August 26, 2010

Home sweet home

Við Björgvin komum heim í gær, mikið var það gott, alltaf er jafn gott að koma heim.

Samt verð ég að segja að dvölin á Barnaspítalanum er ekki alslæm. Allt fólkið sem vinnur þar, læknar, hjúkkur, sjúkraliðar og annað aðstoðarfólk er alveg dásamlegt upp til hópa. Öll aðstaða er til fyrirmyndar. Þetta skiptir allt miklu máli þegar maður er alltaf ein með Björgvin á spítalanum, fólkið er mikill stuðningur og svo má ekki gleyma ættingjum og vinum sem koma og heimsækja okkur!

Leikstofan er mest spennandi hjá Björgvini, sko fyrir utan babú bílinn sem hann vill ferðast á hvort sem það er á klósettið á stofunni eða fram í matsal eða á leikstofuna. Á leikstofunni vinna þrír leikskólakennarar og eru þær í miklu uppáhaldi hjá Björgvini. Honum finnst mest gaman að elda matinn en svo var að koma nýr bíll sem gengur fyrir rafmagni og hann stígur á bensíngjöfina og hann þýtur áfram.


Björgvin var svo ánægður þegar leggurinn í handleggnum var tekinn, reyndar ekki á meðan á því stóð en á eftir gat hann notað báðar hendur og farið í bað! vúhú.

























Nú erum við mæðgin heima og erum búin að borða morgunmat, mála mynd, kubba stórt hús og horfa á Latabæ. Ekki slæm dagskrá það.

Eigið góðan dag kæru vinir.
Ásdís

3 comments:

Anonymous said...

Til lukku með að vera kominn heim. Þið eruð dugnaðarforkar bæði tvö.

kv. Inga Birna

HeLP said...

Hæ elskuleg! Alltof langt síðan ég kíkti á síðuna ykkar.
Gott að sjá að þið séuð heima í góðum gír eftir þessa lungnabólgu!!
Hlakka til að sjá ykkur....kanski í nóv-des en við ætlum að kíkja á klakann þá ;)

Knús í kotið
Linda

Linda Kristín said...

Sætar myndir af Björgvini. Ég náði víst ekki að kíkja á ykkur á Íslandi í sumar en næst!

Hafið það gott!