Monday, August 23, 2010

Kurteisi snúðurinn

Sæl veriði og nú er frekar langt um liðið síðan seinast, en mikið hefur verið að gera að koma öllu í rútínu eftir sumarfrí.

Það verður að segjast að Björgvin Arnar bræðir alla og þá sérstaklega hjúkkurnar hér á barnaspítalanum. Björgvin er með lungnabólgu og varð smá dramatík á laugardagnóttina þegar hann var að metta frekar illa að við komum hingað á spítalann með sjúkrabíl.

Björgvin þakkar fyrir allt sem honum er boðið eða þarf að gera við hann:
- Nú þarf ég að mæla þig aðeins - Já takk
- Viltu fá mjólk að drekka - Já takk
- Má ég gefa þér púst - Nei takk
- Voðalega ertu duglegur - Takk takk.

Kurteisara barn hafa þau bara aldrei vitað um, enda uppeldið alveg einstakt haha ónei, prinsinn minn er einstakur! :)

Nú er staðan sú að hann mettar vel á daginn og þarf því ekki súrefni en hann þarf það á nóttunni og er hann að fá stera og sýklalyf í æð og vonandi kemst hann yfir þetta fljótlega svo að við getum farið heim.

Alltaf er hann glaður og ánægður, nægjusamur er strákurinn og mikill gleðigjafi.

Ég var að hugsa það um daginn hvaða tilfinning er best, hvenær er það sem manni líður best og getur lokað augunum og notið stundarinnar. Þá komst ég að þeirri niðurstöðu að það er þegar ég get verið heima hjá mér á kvöldin slappað af eða verið að gera eitthvað annað þegar barnið manns er sofandi inni í rúmi, hreint og fínt og mett og líður vel. Ekkert er betra í þessum heimi, svo einfalt er það.

Kveðja frá Barnaspítala Hringsins,
Ásdís og Björgvin Arnar

4 comments:

Lilja Björg said...

Vonandi fer "kurteisi snúðurinn" að braggast. Gangi ykkur vel, Ásdís mín.
Knús, Lilja Björg.

Hólla said...

Snúllinn :) Það jafnast ekkert á við kurteist og krúttlegt lítið barn! Vona að hann hristi þessa ljótu lungnabólgu af sér fljótt svo þið mæðgin getið verið sem mest heima í kotinu í rólegheitum :) Kveðja Hólla og Sif C.

Bylgja Dögg said...

Sæti kurteisi snúðurinn:) Gaman að koma hingað og lesa um ykkur mæðginin. Gangi ykkur vel að braggast af þessari lungabólgu. Þið eruð svo dugleg mæðgin :) Bataknús yfir hafið frá DK
Kveðja Bylgja Dögg og co.

Anonymous said...

Þetta er verðugt umhugsunarefni fyrir þá sem taka litlum hversdagslegum hlutum sem sjálfsögðum. Það eru forréttindi að hafa börn sín frísk og getað slakað á og verið áhyggjulaus. Vona að litli fyrirmyndar prinsinn fari að hressast enn frekar svo þið komist heim í sæluna :)
Knús og kossar frá okkur...
Ragga