Thursday, July 8, 2010

Lítill listamaður.

Björgvin gerði fallegt listaverk á leikskólanum fyrir sumarfrí, þegar hann kom heim þá heimtaði hann að halda á því og sagði mömmu sinni að taka mynd af sér, hér er afraksturinn af því.



Þokkalegi snillingurinn, svo flott hjá honum og hann svo stolltur af listaverkinu sínu :)

Hann talar svo mikið, er alveg á útopnu, bætir við sig á hverjum degi, yndislegt að upplifa þetta tímabil hjá honum, breytist úr barni í krakka.

Litli kúturinn fékk lungnabólgu í seinustu viku og þurftum við að vera á spítalanum yfir nótt, fengum svo að fara heim en koma einu sinni á dag yfir helgina að fá sýklayf í æð. Sem betur fer jafnaði hann sig fljótt á þessu og varð ekki meira úr, enda erum við í sumarfríi og ætlum ekkert að vera inni á spítala! 7,9 13!!! :-D

Sumarkveðja
Ásdís og Björgvin Arnar

1 comment:

Anonymous said...

Flott listaverk sem kemur nú til með að sóma sér vel á heimilinu. Gaman hvað hann er stoltur og ánægður með verkið sitt og hvað hann er að fara mikið fram þessa dagana:-)
Bestu kveðjur og knús
Inga Huld og Sigurður Steinberg