Friday, December 25, 2009

Gleðilega jólahátíð.

Gleðileg jól kæru vinir og ættingjar.

Nú erum við komin heim til Íslands og fer það bara mjög vel í okkur. Það var mikið átak að komast heim með allan farangurinn og voru það góðu vinir okkar Sunna og Maggi ásamt dætrum sem keyrðu okkur út á flugvöll og sáu til þess að við kæmumst um borð í flugvélina. Þegar við komum heim þá var vel tekið á móti okkur með fjölskylduboði, það var læri á boðstólnum ásamt malti og appelsín, gerist ekki betra. (mér sýnist Björgvin vera í símanum, ekki í fyrsta skiptið :)



















Svo eru dagarnir fram að jólum búnir að líða hratt og vel, ekkert jólastress í gangi þar sem jólagjafirnar voru keyptar snemma í ár. Við vorum bara að njóta þess að vera komin heim í faðm fjölskyldunnar.

Á Aðfangadag þá vorum við öll hjá Elvari bróður og Huldu konu hans. Við dressuðum okkur upp í okkar fínasta púss og mættum til þeirra fyrir kl 18. Hér eru afi og Björgvin Arnar saman, algjörir gæjar í sparifötunum.

























Björgvin Arnar var nú ekki alveg að skilja allt þetta stúss en hann var glaður að sjá öll jólaljósin og pakkana sem voru undir trénu.

























Hér erum við mæðginin.























Björgvin Arnar fékk margt fallegt í jólagjöf, við vorum þakklátust fyrir allt dótið sem hann fékk þar sem mikið af dótinu hans kemur ekki til landsins fyrr en um miðjan janúar, þannig að þetta var allt saman kærkomið. Hér er hann að leika sér að kubbum sem hann fékk frá ömmu sinni og afa.


















Þetta var yndislegt kvöld, við þökkum Elvari og Huldu kærlega fyrir okkur! Maturinn var ólýsanlega góður, tónlistin ljúf, félagsskapurinn frábær. Þetta var fullkomið kvöld, það vantaði bara Óla bró og fjölskyldu sem eyðir jólunum í Noregi í ár.

Gleðileg jól öllsömul.

Ásdís og Björgvin Arnar

3 comments:

HeLP said...

Já jólin eru góð í faðmi fjölskyldunnar!! Gott að sjá að jólin voru ykkur góð elskurnar ;)

Heyrumst sem fyrst á nýju ári.

Anonymous said...

Yndislegt að heyra Ásdís mín. Árið 2010 verður þitt ár!!! Hafið það sem allra best - hlakka til að sjá ykkur - Knús úr Grindí

Anonymous said...

Knúsið að ofan kemur frá Fjólunni og skvísunum hennar ;)