Monday, November 16, 2009

Stuð í Stokkhólmi

Það er nú aldeilis búið að vera fjör hjá okkur Björgvini í Stokkhólmi. Í fyrsta lagi þá erum við bæði himinlifandi að vera búin að fá Allý til okkar, þvílík dásemd. Björgvin er ekki óánægður með að hafa svona mikla athygli, hún hefur sem sagt tvöfaldast og hann er alsæll.

Við fórum á Hrekkjavökuball hjá Íslendingafélaginu um daginn og var Björgvin enginn annar en jólasveinninn, þvílíkt ógnvekjandi ! hehe.

























Svo fengum við fríðan hóp af skvísum úr Grindavík í heimsókn. Það var ekkert smá stuð og Björgvin var í essinu sínu í kringum allar skvísurnar og gaf öllum knús öðru hverju. Þær komu aðeins við í búðunum þar sem mikill vöruskortur ríkir greinilega á klakanum.


















Mamman og Allý skelltu sér svo með Sunnu og Lindu á Pink tónleika. Þeir voru svo ótrúlegir, Pink er svo mikill töffari að það eru eiginlega engin orð til til að lýsa þessu nákvæmlega, hún var bara æði!






Nína kom til okkar seinustu helgi, hún rétt missti af tónleikunum og var svo svekkt að hún þurfti að fá sushi í sárabætur :) Björgvin var sko sáttur við að fá Nínu í heimsókn, hún fékk knús og aftur knús.


























Björgvin Arnar fer í aðgerð núna á fimmtudaginn, við fórum í innritun í dag og töluðum við skurðlækninn og svæfingarlækninn. Þessi aðgerð á að vera svipuð og hin fyrri og nú getur hann séð hvernig sú fyrri gekk þegar hann fer niður í kokið. Verður spennandi að sjá hvernig þetta fer allt saman. Nú verður Björgvin að vera heima þangað til kemur að aðgerðinni svo að hann fái ekki flensu og nú er gott að hafa Allý hjá okkur, lifesaver!

Kram
Ásdís og Björgvin Arnar

4 comments:

Anonymous said...

Já, það var svo gott að fá knús frá litlu bollunni!
Kv. Nína

Anonymous said...

Það er svaðalegur vöruskortur á klakanum :) hahaha

Hann er langflottastur þessi fallegi prins þinn, spurning um að fá hann sem tengdason!

Gangi ykkur vel - stórt knús... Kv. Fjóla

Unknown said...

Frábært :) hann er meira krúttið - mikið hlakka ég til að sjá ykkur þegar þið komið heim... Gott og gaman að geta fylgst með ykkur sætu mæðginum á síðunni.
Knús. Ragga

Anonymous said...

Hann er nú meira krúttið þessi drengur og veit greinilega alveg hvað hann vill! Gangi ykkur vel á morgun með aðgerðina.

kv. María