Við fengum að koma heim í dag, það er algjör sæla. Björgvin var svo sæll og glaður að koma heim að hann dansaði og hoppaði um og svaf svo vært um daginn, þreyttur eftir allt þetta pot.
Hann var sko glaður að sjá afa sinn í gær, faðmaði hann og kyssti. Við fórum niður á kaffiteríu á spítalanum og fengum okkur að borða saman.
Björgvin er orðinn svo alvanur öllu hér að hann leiðir mann út um allan spítala í hitt og þetta leikhorn til að leika. Svo hleypur hann um gangana og talar við fólkið. Hérna eru krúttin saman að kúra.
Til gamans læt ég fylgja myndir af afmælisveislu sem var haldin á deildinni í gær, það voru tvö börn sem áttu eins árs afmæli og var eldhúsið skreytt blöðrum og allir klæddir upp í sitt fínasta púss.
Hér er mynd af öðru afmælisbarninu.
Allý tók vel á móti okkur þegar við komum heim í dag og eldaði dýrindis máltíð handa okkur. Björgvin hefur ekki borðað svona mikið af venjulegum mat síðan, ja ég man ekki síðan hvenær. Það var dásamleg sjón og maður þorði varla að anda til að trufla ekki drenginn :)
Á morgun þá er dagur 1 í gleraugnanotkun, eins gott að byrja að venja prinsinn á að verða prófessor. Hann er svo sætur með þau og þetta á vonandi ekki eftir að verða vandamál.
Ætli við röltum ekki eitthvað út með afa á morgun, smá tilbreyting af inniverunni á spítalanum og ná okkur í smá súrefni.
Kram frá okkur
Ásdís, Björgvin Arnar, Gotti afi og Allý
Wednesday, November 25, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Gaman að heyra hvað Björgvin er kátur og glaður! Og mamman líka :)
Kv. hh
Já, drengurinn er alltaf hress og kátur! Fáum við svo ekki að sjá mynd af honum með gleraugun?
Kv. Nína
En frábært :) Alltaf svo gott að koma heim í heiðardalinn og vonandi veit á gott að hann skyldi hafa góða matarlyst litli snúðurinn! Sifin mín er voða slöpp að borða svo þegar þau undur og stórmerki gerast að píslin tekur hraustlega til matar síns þorir maður varla að horfa í áttina til hennar...smá meðvirkni í gangi eða þannig...hehehe! Baráttukveðjur :) Hólla og Sif.
Frábært að þið eruð komin heim :)
Hugsa til ykkar;)
Knús yfir til Svíþjóðar
Post a Comment