Björgvin er miklu hressari í dag en í gær. Hann var með verki í gær og mikla verki í maga vegna lofts úr aðgerðinni. Við fluttumst af gjörgæslu yfir á dagdeild í gær, það var mikið gott þar sem erillinn er mikill á gjörgæslunni og náttúrulega gott að þurfa ekki að vera undir stöðugu eftirliti.
Hér erum við, hann vildi ekkert reisa sig upp frá koddanum í gær en núna vill hann vera hjá okkur og ferðast um sem er mikið batamerki, greinilega ekki eins slappur.
Hérna er merkið á rúminu hans:
Nú borðar Björgvin þurrt Cheerios, það eina sem hann vill og yfirleitt það eina sem hann hefur lyst á. Hann er að horfa á Söngvaborg núna og dilla sér, algjört krútt.
Hann stillti sér upp fyrir mömmu sína í myndatökunni og krafðist þess að fá að taka mynd líka og hér kemur afraksturinn:
Allir frekar þreytulegir þá þessum bæ en við höngum uppi :) Björgvin var með smá sýkingareinkenni og fékk aukin sýklalyf. Við verðum hér fram í næstu viku, það er öruggt.
Allý situr hér og lærir og við Björgvin ætlum að fara að leggja okkur saman.
Kveðja frá okkur
Ásdís, Allý og Björgvin Arnar
Saturday, November 21, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Hann er svo duglegur og þú líka Ásdís. Þið standið ykkur eins og hetjur og þið eruð bara flottust, svo krúttilegt hvernig hann pósar þessi dúlla :) Hugsa til ykkar. Kær kveðja, Fjóla SD og Shopping master hihi
*knús* á ykkur duglega fólk :) love Ester og Sara
Gaman að sjá myndirnar, Björgvin er greinilega upprennandi ljósmyndari! Biðjum að heilsa, Hrund og co.
Risa knús!
Nína
Hejsan duglega fólk!
Gott að sjá myndir og heyra nýjustu fréttir - þið eruð ekkert eðlilega sæt bæði tvö!
knús á ykkur frá okkur hér á íslandinu.......hlökkum til að sjá ykkur, kv. Sigga Maja og co
Ég fer alltaf pínu að skæla þegar ég les þetta blogg og skoða myndirnar.. þvílíkt krútt og þvílík hetja þessi litli strumpur.. það er ótrúlegt hvað þessu litlu kríli eru hörð af sér!
Gangi ykkur sem allra best í öllu þessu ferli, ég hugsa til ykkar.
Knús, Inga Birna
Post a Comment