Mamman var mikið fegin að sjá strákinn sinn, hún fékk að halda á honum strax á eftir aðgerð þar sem best er fyrir hann að vera í uppréttri stöðu vegna súrefnisinntöku svona rétt eftir aðgerðina. Fyrstu tímarnir á eftir aðgerð eru mikilvægir þar sem mikil hætta er á að bólgur í öndunarvegi verði til þess að hann þurfi hjálp við að anda eins og t.d. öndunarvél.
En Björgvin er svo ótrúlega duglegur og mikil hetja að ekki hefur þurft á öndunarvél að halda aðeins súrefni og við skulum nú vona að það haldist þannig. Hann er með pínku hitaskömm núna og fær sýklalyf í æð til að forðast sýkingu í öndunarveginn og á verkjalyfjum.
Þarna liggur litli minn, duglegasti strákurinn með me me sinn sem heldur súrefnisgrímunni fyrir hann. Hér á eftir kemur mynd af lífsmörkunum, það er náttúrulega margir sem hafa gríðarlegan áhuga á að sjá það! hehe.
Gríski skurðlæknirinn okkar vill gera næstu aðgerð eftir 3 mánuði og vonandi fáum við þá að koma hingað til Svíþjóðar og halda meðferðinni áfram hér.
Björgvin verður alla vega á gjörgæslunni í nótt og svo verður séð til á morgun hvort við fáum að fara á dagdeildina. Við verðum hér á spítalanum alla vega fram yfir helgi og er fólkið hér mjög gott og klárt og því miður talar maður af mikilli reynslu.
Allý kom til mín áðan með heimalagað lasagne, gerist þetta nokkuð betra? þvílíkur lúxus, þurfti ekki að borða spítalamat :) Svo sökkti hún sér niður í skólabækurnar við rúmstokkinn hjá Björgvini á meðan ég skrifa þetta blogg.
Þangað til næst.
Knús og kreist
Ásdís og Björgvin Arnar
11 comments:
Dáist að ykkur!
Kv. úr Keflavíkinni
Hrund og co.
Gott að heyra að þetta hafi gengið svona vel fyrir sig. Hann er svo ótrúlega duglegur drengurinn að maður á ekki til orð. Hugsum til ykkar.
Kv. Bjarni og co.
Frábært að heyra og sjá að allt hefur gengið vel.
Baráttukveðjur,
Linda & fjölsk.
Hann er ótrúlegur snillingur, ótrúlegt hvað hann er sterkur og þú mikil hetja Ásdís mín.+
Knús og kram
Ester og Sara :)
Þið mæðginin eruð svo ótrúlega dugleg, gott að allt er að ganga í rétta átt þó það sé svona rólega.
Bestu kveðjur af Skaganum,
Ella María og Arnar
Hann er bara duglegastur!
Kv. Nína og co.
Hæ,hæ! Gaman að fá að fylgjast aðeins betur með ykkur litla snúð! Og frábært að heyra að aðgerðin gekk vel :) Hann er aldeilis duglegur litla dýrið, kveinkar sér ekki einu sinni þegar hann er stunginn sé ég, ótrúlegt hvað hann er mikill töffari! Bestu kveðjur frá Hóllu og Sif.
Frábærar fréttir!
Bestu kveðjur um góðan og snöggan bata
Linda, Pálmar og Hekla
Áfram Björgvin!
Æðislegt að allt gekk vel :) Þið eruð algjörar hetjur
knús frá okkur á svölutjörninni
Svava, Aggi og Hulda María
Gott að þessi aðgerð er búin og gekk að óskum, vona að nóttin verði góð hjá þessum duglega litla manni og duglegu mömmu hans.
með kærri kveðju frá okkur öllum
Post a Comment