Monday, November 23, 2009

Eitt skref áfram og tvö skref til baka

Ja hérna hér, það er aldeilis búið að vera aksjón hér á Astrid Lindgren sjukhus!

Björgvin Arnar gerði sér lítið fyrir og fékk tvö flogaköst í gær sem gerði mömmu hans lafhrædda. Fyrsta var frekar stutt en númer tvö var lengra. Þetta var í fyrsta skiptið sem svona lagað kemur fyrir hjá honum og var þetta frekar ógnvekjandi að sjá.

Vegna þess að Björgvin er á blóðþynningarlyfjum þá er alltaf það fyrsta sem læknarnir hugsa hvort um heilablæðingu eða blóðtappa sé um að ræða og því var Björgvin sendur í CT skanna í dag og heilalínurit. Ekkert fannst á myndunum sem benti til þessa sem betur fer. En nú verður að skoða þetta betur og koma taugalæknar að hitta okkur á morgun til að reyna að finna út ástæðuna.

Við notuðum tækifærið þegar hann var svæfður í dag og létum svæfingalæknana klippa augnhárin hans þar sem hann þarf að byrja að nota gleraugun sín sem fyrst. Hann var alveg ótrúlega flottur með nýju klippinguna, algjörir burstar og mjög þétt hárin, bara algjör töffari.

Eina sem er gott að frétta frá okkur er að öndunin í Björgvini virðist vera betri en hún var fyrir aðgerð, eða alla vega þá stynur hann ekki eins mikið við hverja öndun sem er mikið mál. Vonandi helst þetta svona þegar hann er farinn á fullt. Það er mikill árangur þar sem að um lítið hænuskref hafi verið um að ræða í útvíkkuninni.


















Mæðginin í eins pósu :)

Ég þakka ykkur sem eru að fylgjast með okkur og skrifa mér komment kærlega fyrir, það skiptir miklu máli að vita að fólk er að hugsa til okkar, það munar um allt!

Kram frá Q63
Ásdís og Björgvin Arnar

3 comments:

Anonymous said...

Nei sko...
frekar eitt skref til baka (flogaköstin) og tvö skref áfram öndunin er betri og þið fáið að tala við taugalækninn á morgun sem er bæði ROSALEGA gott :)

Stubbaknús :)
Ester og Sara

Anonymous said...

Gangi ykkur allt í haginn. Hugsum fallega til ykkar og sendum ykkur batastrauma.

Hann verður nú meira sjarmatröllið þessi drengur. Þið eruð dásamleg og standið ykkur svakalega vel.

Knús úr Grindícity :*

Kv. Fjóla og dætur

Anonymous said...

Elsku Ásdís og Björgvin!
Þið eruð svo dugleg bæði tvö. Gott að heyra að öndunin sé að lagast hjá honum.

Knús og kossar frá Trondheim,
María & Co