Friday, April 20, 2012

Undirhakan vekur mikla gleði :)

Jæja nú er mars liðinn og þá þarf að birta niðurstöður frá fitumars. Björgvin fékk kolvetnisduft í vatnið, fitumixtúru 4 msk á dag, build up blandað í nýmjólk, rjóma og ís, lýsi, vítamín og svo mikið smjör og allt sem er fitandi.

Við fórum líka inn á leikskólann og þau tóku þátt í þessu átaki okkar með því að gefa honum nýmjólk í staðinn fyrir vatn í hádeginu, eina msk af fitu eftir hádegismatinn og svo mikið smjör og álegg á það sem hann borðar í önnur mál.

Björgvin Arnar þyngdist um 600 gr. í mars þrátt fyrir gubbupest og kvef. Það er ótrúlega góður árangur miðað við að hann hefur verið í sömu þyngd í 2-3 ár. Nú þarf að halda þessu áfram til að hann hafi orku til að stækka, krossa fingur!

















Núna í apríl þá rifjuðum við upp áhyggjurnar og stressið í smá stund. Björgvin fékk uppköst og hausverk eftir að hann byrjaði að fá vaxtarhórmón. Við það fór hann í CT myndatöku á höfði sem leiddi í ljós að þetta voru ekki aukaverkanir í höfði af lyfinu heldur fundu læknarnir eitthvað annað í höfðinu hans. Björgvin fór þá næst í MRI myndatöku á höfðinu sem er mun nákvæmari og kom þá í ljós að ekkert hættulegt var í höfðinu hans, guði sé lof! Þvílíkur ólýsanlegur léttir.

En hann þurfti að fara í öndunarvél í svæfingunni og í kjölfarið fékk hann lungnabólgu en er allur að koma til núna og er hress og kátur eins og hann er vanur að vera.

Í öllu þessu þá hugsaði maður til þess tíma sem við vorum mikið á spítalanum og hve marga góða vini ég á sem komu til okkar, með mat eða til að styðja okkur andlega og félagslega. Því mun ég aldrei gleyma :-*

Mikil tilhlökkun er fyrir sumrinu hér í Svölutjörninni og munum við nota þann tíma til að efla Björgvin líkamlega og fita hann eins og við eigum lífið að leysa.

Kaloríukveðjur,
Ásdís og Björgvin Arnar

4 comments:

Anonymous said...

Frábær árangur! :)

Bjarki

Anonymous said...

Hann er sko duglegur, þessi elska, litla bollan :)

Kv. Nína sem saknar hans voða voða mikið :)

Anonymous said...

Þetta kemur allt hjá ykkur, hægt en örugglega!
Sumarið er tíminn :)

Kv,
Hrannar

Solla said...

gott að heyra að allt hafi farið vel og ég þyrfti að fá að hitta Björgvin aðeins, því ég kann óteljandi aðferðir til þess að fitna !!