Saturday, December 24, 2011

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Á morgun ganga jólin í garð og við Björgvin og Andrea verðum hjá Elvari bróður og Huldu á Aðfangadag. Það er mikill spenningur og síðan að Björgvin og afi skreyttu tréð og pakkar settir undir þá er mikið búið að spá hvenær megi opna þessa blessuðu pakka.

















Björgvin er búinn að vera mjög kvefaður og æla miklu slími, vonandi fer þetta að lagast. Hann fékk flensusprautu fyrir viku síðan og er búinn að vera hálfslappur án þess samt að fá hita. Vonandi fer hann að hrista þetta af sér.



Þetta er búið að vera viðburðaríkt ár hjá okkur hér í Svölutjörninni. Mikil veikindi hófust strax í janúar þar sem Björgvin lagðist inn þann 17. janúar með lungnabólgu og vorum við þar í 3 vikur en fengum svo að fara heim með súrefnisvél.

Við héldum því upp á 4. ára afmælið hans á Barnaspítalanum sem var mjög eftirminnilegt þar sem íþróttaálfurinn mætti og kætti Björgvin og fleiri börn í leiðinni. Björgvin hefur lengi lifað á þessu og fékk svo að hitta íþróttaálfinn aftur seinustu helgi í afmæli hjá vinkonu sinni og íþróttaálfurinn þekkti hann aftur og var með Björgvin mikið í fanginu og spjallaði heilmikið við hann.

Svo var Björgvin alveg með súrefnið hér heima þangað til við vorum send til Boston 1. maí til að rannsaka hvað væri í gangi og sú ferð endaði að vera mánuður og 5 dagar og var gerð aðgerð á Björgvini þar sem 40% af vinstra lunganu var fjarlægt. Hann hefur verið miklu betri síðan og ekki farið inn á spítala síðan þá (7, 9, 13). Þetta voru vægast sagt mjög erfiðir tímar, ekki var mikið svigrúm til að gera neitt annað en að berjast fyrir drengnum.

Nú er það bara þolinmæðin sem dugir, að gefa honum að borða til að reyna að fita hann og að vonast til að hann stækki eitthvað. Einnig er mikið mál að næstu mánuðir gangi vel fyrir sig flensulega séð. Seinustu tvö ár hafa verið þannig að í janúar hefur hann verðið lagður inn á spítala. Vonum það besta núna!

















Við þökkum vinum og ættingjum þann stuðning og velvild í okkar garð á árinu sem er að líða. Við höfum nú fundið fyrir því að það er ómetanlegt að eiga góða að á erfiðum stundum jafnt sem góðum. Við erum sæl og glöð og tökum á móti jólunum opnum örmum og ætlum að eyða næstu dögum í faðmi fjölskyldunnar, ekkert er betra en að vera öll saman, inn með gleði og frið.

Gleðilega jólahátíð,
Ásdís og Björgvin Arnar

6 comments:

Anonymous said...

Gleðileg jól Kv. Hólmar,Emelía og Ásthildur

Anonymous said...

Hafið það sem allra best yfir hátíðirnar :)

Kv. Hrund og co

Anonymous said...

Gleðileg jól elsku mæðgin, megi næsta ár verða ár góðrar heilsu og vaxtar!

Bjarki

Anonymous said...

Hafið það gott og borðið á ykkur gat :)

Jólakveðjur frá Króknum ;)

Anonymous said...

Gleðilegt ár elsku vinir og takk fyrir góðu pislana á síðasta ári:-)
Kv Inga Huld

Anonymous said...

Dáist að ykkur mæðginunum hvað þið eruð dugleg í þessum veikindum. Rambaði inn á bloggið ykkar þegar ég var að leita mér upplýsinga um þrengingu í öndunarvegi hjá börnum eftir að strákurinn minn var greindur með subglottic stenosis og hef alltaf lesið bloggið ykkar eftir það. Nú erum við búin í fyrstu aðgerðinni til að víkka öndunarveginn. Hef áhuga á að fræðast aðeins um þetta "ástand" ef drengirnir okkar eiga við það sama etja!
kv. Helga Dóra (helgadoraj@gmail.com)