Seinustu mánuðir hafa gengið svakalega vel. Björgvin hefur fengið flensu í haust, kvef, hita og gubbupest og í öll þessi skipti höfum við sloppið við spítalaferð. Það er eiginlega kraftaverk að hann hafi fengið kvef án hita og lungnabólgu.
Við finnum fyrir miklum mun á honum þroskalega séð, talmálið er bæði skýrara og orðaforðinn er orðinn mjög góður. Hann segir orðið alveg ótrúlegustu hluti og er stundum eins og fullorðinn maður.
Við þurftum reyndar að fara á spítalann í vikunni vegna þess að hann fékk miklar blóðnasir sem stóðu yfir í tvo og hálfan tíma. Okkur var gefið krem sem græðir og brennir smá fyrir æðar og hjálpaði það. En Björgvin var að tala við hjúkrunarkonuna og svo snéri hann sér að mömmu sinni og sagði "Mamma, þessi kona er skrítin!" Já hann er farinn að koma manni í smá bobba litli grallarinn minn :)
Við fórum í búð í dag þar sem var leikhorn með pústluspili með formunum. Svo segir Björgvin "Mamma, er þetta rectangle?" og sýnir mér rétthyrning. Alveg ótrúlegur prófessor.
Latibær og íþróttaálfurinn er ennþá í miklu uppáhaldi og er hann stöðugt að leika sér með hann. Björgvin er á leikskólanum alla daga til kl 15:30 á daginn og er ekkert mjög þreyttur eftir daginn, þrekið og þolið er orðið miklu betra og hann er svo glaður á leikskólanum.
Björgvin er einnig í boltaskólanum einu sinni í viku og er það verið að gera allskonar þrautir og læra að leika sér með bolta. Björgvin er mjög duglegur og er hann búinn að ná árangri í þrautunum, sumt gerði hann ekki fyrst en er farinn að auka við sig í styrk og þori.
Það er ekki búið að mæla hæðina á honum í þónokkurn tíma en hann hafði stækkað um 2 cm í sumar og vonandi fer hann að bæta nokkrum við sem fyrst. Hann er ekki búinn að þyngjast neitt mikið seinustu 3 mánuði en borðað samt betur og er farinn að borða sjálfur á leikskólanum, svo duglegur strákur.
Björgvin var alsæll að sjá snjóinn en þorði samt ekki að fara á þotu, er með svo lítið hjarta. En spenningurinn fyrir jólunum er mikill og verið að undirbúa börnin fyrir jólin á leikskólanum og segja þeim sögur af jólunum. Björgvin segir oft "Ég elska jólin, mamma".
Lífið er sko breytt hér í Svölutjörn, minni áhyggjur þó svo að þær verði alltaf einhverjar enda eðlilegt þegar maður á langveikt barn. En lífið er orðið miklu meira nær eðlilegu lífi og er tilfinningin ólýsanleg að geta farið í vinnuna og barnið manns er á leikskólanum, eitthvað sem fólk tekur sem sjálfsögðum hlut.
Jólaundirbúningskveðja,
Ásdís og Björgvin Arnar
6 comments:
Alveg frábært hvað litli stálkallinn þinn dafnar vel!
Vegurinn uppávið tekur alltaf aðeins lengri tíma en góðir hlutir gerast hægt :)
Kv,
Hrannar
íþróttaálfurinn gæti lært margt af þessum dreng! Og af mömmunni líka! :-)
Kv. Bjarki
Þið eruð svo dugleg Ásdís mín og yndislegt hvað hann dafnar vel núna :)
knús Ester
Bara dásamlegt :)
Hrund & co.
Frábært að heyra, Ásdís!
Þetta er skemmtilegur strákur sem þú átt Ásdís og það er frábært að sjá hvað lífið er að fara betur með hann um þessar mundir, hann átti það svo sannarlega skilið.
Hlakka til að hitta þig mín kæra :)
Kveðja,
Þórey Arna
Post a Comment