Monday, September 5, 2011

3 mánuðir frá heimkomu

Tíminn líður hratt þegar það er gaman og þegar vel gengur. Sumarið okkar var alveg meiriháttar og er Björgvin búinn að njóta sín mikið hér heima, úti á palli að leika sér og á leikskólanum.

Nú erum sumarfríinu lokið og allt komið í rútínu. Björgvin er byrjaður á leikskólanum og er alveg alsæll. Hann er til tvö eða þrjú á daginn og er alveg fullur af orku og er ekki hægt að sjá á honum að þetta taki á hann. Hann fer reyndar að sofa snemma, fyrir klukkan átta á hverju kvöldi en er þá mjög hress allan daginn.


Það er mikill munur á honum, orkulega séð og einnig hve vel hann borðar núna. Hann borðað vel og er kominn yfir 12 kg og er búinn að stækka um rúma tvo cm. Hann hefur miklu meiri orku og kraft og er glaður og hress. Yndislegur í alla staði.

Björgvin er byrjaður í boltaskólanum hjá Agga frænda og Svövu og finnst það mjög skemmtilegt, hann fer um salinn og gerir æfingar eins og hann hafi aldrei gert annað og finnst skemmtilegast að hoppa niður af hesti á dýnu.

Við förum á morgun inn á spítala í eftirlit og ætlar hann að kíkja á leikstofuna og heimsækja Sibbu og Gróu vinkonur sínar.

Kveðja úr Svölutjörn
Ásdís og Björgvin Arnar

7 comments:

Anonymous said...

Hann er svo ótrúlegur :)

kv. Bjarki

Linda said...

Gaman að heyra að það gengur vel :-)

Anonymous said...

Algjört hörkutól sem þú átt!
Frábært hvað allt gengur vel hjá ykkur :)

Kv,
Hrannar

doristori said...

Frábærar fréttir

Anonymous said...

Yndislegur:)

Knúsar til ykkar beggja!

Kv. Bylgja og co

Anonymous said...

Ótrúlegar framfarir.
Þarf hann ekki að sofa svona mikið að því að hann er sonur móður sinnar :) :)

Kveðja Ester

Sunna og Magnús said...

Ásdís mín það er svo yndislegt að kíkja hérna inn og fá bara góðar fréttir :)

Áfram Björgvin segjum við bara! Hlökkum alveg hrikalega til að hitta ykkur um jólin!

kram