Thursday, April 28, 2011

Undirbúningur fyrir Boston

Nú erum við að undirbúa okkur fyrir ferðina til Boston. Það er svo mikið sem fylgir okkur, öll lyfin, pústvél, súrefnisvél, súrefniskútar, bætiefni og svo allt þetta venjulega líka :)


Björgvin er voða hress þessa dagana og lítur mjög vel út, hann er að metta betur þó svo að hann sé ekki farinn af súrefninu ennþá. En það eru góðar fréttir þar sem það er mikilvægt að hann sé í góðu formi til að fara í svæfinguna til að auka líkurnar á að allt fari vel.

Nú teljum við niður dagana, verður gott að fara út og láta þessa snillinga vinna vinnuna sína þó svo að mikill kvíði er líka fyrir hendi þá verður bara að rannsaka hetjuna betur.

Kveðja frá mæðginunum í Svölutjörn.

ps. muna að kvitta :)



8 comments:

Eva Nadira & Tinna Eliza said...

Hetjur :)

Bjarki

Sunnhildur said...

Fallegu þið :)
Við söknum ykkar svoo mikið!

Gangi ykkur sem allra allra best í Boston

p.s. vissirðu að það er ekki hægt að kommenta án þess að logga sig inn á google (eða ég gat það alla vega ekki)

Fjölskyldan í Svölutjörn said...

Sunna mín, þú velur bara Anonymous :)

Atli Oddsson said...
This comment has been removed by the author.
Atli Oddsson said...

Bestu kveðjur og gangi ykkur vel!

Asa C & fjölskylda

Atli Oddsson said...

Ása var að reyna að commenta í dag og gat það ekki því hún þurfti að logga sig inn. Ég reyndi að gera það anonymous en þurfti að logga mig inn á google accountinn minn...

Anonymous said...

Gangi ykkur sem allra best. Góða ferð á morgun - knús og kossar, Ragga

Óli Örn said...

Gangi ykkur þrusuvel! Kærleikskveðjur frá Noregi - þið verðið í bænum okkar ♥