Björgvin fer í hjartaþræðingu, berkjuspeglun, barkaskoðun og tölvusneiðmynd. Nú er bara að vona og krossa fingur að eitthvað komi út úr þessu sem hægt er að laga svo að Björgvin geti öðlast betri heilsu.
Í seinustu viku kom góður gestur til okkar, Helga sem er með Brúðubílinn mætti til okkar og sýndi Björgvini Lilla litla og fleiri brúður. Hann var alsæll með þetta og var nú frekar feiminn við Lilla vin sinn fyrst en svo lagaðist það fljótlega.
Svo fengum við gest í dag, algjörlega óvænt, hann Björgvin Frans kom til okkar eftir að hafa verið að skemmta á barnaskemmtun hér í bæ og frétt af veikum strák sem komst ekki. Björgvin fékk einkasýningu og var ekkert smá ánægður. BF söng sjóræningjasönginn úr Söngvaborg og svo aðallagið úr Benedikt búálfur. Ótrúlega fallegt af honum að koma til okkar og lífga upp á daginn hans Björgvins.
Ég þakka vinkonum mínum úr 5dk fyrir að senda Helgu Steffensen til okkar í seinustu viku og svo líka Allý fyrir að koma með Björgvin Frans til okkar. Ástarþakkir!
Kveðja úr Svölutjörn
Ásdís og Björgvin Arnar
3 comments:
Hetjurnar mínar, finnst svo skrýtið að þið séuð að fara út, mikið er nú gott hvað þið eruð búin að fá margar flottar heimsóknir frá alvöru skemmtikröftum ekki veitir af til að stytta stundirnar.
RISAKNUS frá okkur
Ester, Hjalti, Sara og Alexander
Gangi ykkur vel! Bestu kveðjur frá Stokkhólminum
Linda Kristín og co.
Gangi ykkur vel, við hugsum til ykkar!
Kv. Rakel í Stokkhólmi.
Post a Comment