Jæja, við fengum að fara heim af spítalanum í gær með súrefni með okkur. Það var ekkert smá gott að koma heim, þungu fargi af okkur létt. Ótrúlegt hvað mikið dót safnast saman í þessa litlu stofu á spítalanum, eins og maður hafi verið þarna í marga mánuði.
Við fengum súrefnisvél með okkur sem býr til súrefnið sjálf og því þarf maður ekki að hafa áhyggjur af því að verða uppiskroppa með súrefni, algjör lúxus. Vonandi mun hann samt losna við súrefnið fljótlega, en þetta gengur ekkert smá hægt.
Björgvin varð 4 ára á fimmtudaginn og kveið mér fyrir því að hann ætti afmæli á spítalanum en úr varð að þessi afmælisdagur var alveg stórkostlegur. Hjúkkurnar og Gróa á leikstofunni og Birna í býtibúrinu hjálpuðu við að skreyta og svo var pöntuð stór og vegleg afmæliskaka.
Afmælisgestirnir voru amma, afi og Andrea Björt, Bjarki, Ragga, Hanna María og Tinna með sínar dætur. Auðvitað voru svo fullt af öðrum börnum og foreldrum á spítalanum einnig þarna.
Ekki skemmdi fyrir að íþróttaálfurinn kíkti á okkur og vakti mikla lukku. (Takk endalaust fyrir frúttís vinkonur!) Hann lék ótrúlegar listir og gaf Björgvini fullt af Latabæjardóti. Vá hvað börnin voru glöð og Björgvin sagði svo um kvöldið þegar hann var að fara að sofa, "Mamma, æði dagur" og brosti.
Þegar maður heyrir svona er tilgangnum náð og við sofnuðum sæl og glöð :)
Nú erum við bara að bíða eftir að hann lagist og losni við súrefnið. Það getur alveg tekið vikuna, en vonandi ekki lengur.
Ásdís og Björgvin Arnar afmælisbarn.
Saturday, February 5, 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Þetta var frábært afmæli, takk fyrir mig!
Íþróttaálfurinn er snillingur :)
kv. Bjarki
ps. næst verð ég tilbúinn í alvöru handstöðu
Æ en yndislegt að heyra þið séuð komin heim!
Og hvað afmælisdagurinn var vel lukkaður :)
Risaknús
Knús á ykkur yndislegu!!
Post a Comment