Á laugardaginn vorum við með mömmu og pabba í mat og horfðum svo á júró. Mikil stemmning var á kósýkvöldinu hjá okkur og Björgvin var alsæll að hafa alla svona saman.
Svo komu Eyrún og Helgi og við spiluðum, tilþrifin voru mikil eins og sést á myndinni. Vel heppnað kvöld í alla staði.
En Björgvin er samt sem áður með súrefnið ennþá, þetta ætlar að taka tíma hjá okkur í þetta skiptið. Nú er þetta komið komið á fimmtu viku. Við fórum til læknis í gær og hann fór í lungnamyndatöku sem kom mjög vel út svo að þetta hlýtur að koma hjá okkur í þessari viku. Það verður mikill munur þegar hann getur verið súrefnislaus.
Mikið slím er ofan í honum sem gerir það að verkum að hann er mjög lystarlaus, vill ekki borða neitt, nema pizzu! Ótrúlegt hvað pizzan er alltaf góð! :)
Pizzukveðja úr Svölutjörn
Ásdís og Björgvin Arnar (og Andrea Björt)
5 comments:
Allt á réttri leið.
Flott að sjá hvernig Björgvin heldur í Nóa á myndinni greinilegt að stóri bróðir er í uppáhaldi.
Knús frá okkur
hefði nú átt að skrifa undir frá hverjum...
knús frá Ester, Hjalta, Söru og Alexander :)
hahaha ef einhver á skilið pizzu í öll mál þá er það hann!
Gaman að sjá myndirnar, greinilega mikið fjör hjá skemmtilegri fjölskyldu :)
kv. Bjarki
Flottastur :)
Kv. Nína og co.
vonandi fer Björgvin Arnar að losna við súrefnið - greinilega búið að vera gaman :) Knús og koss, Ragga
Post a Comment