Wednesday, December 15, 2010

Sniðugasti strákurinn

Björgvin er mikill hugsuður og er ekkert að garga og öskra mikið, vill helst hlusta á tónlist og pústla eða mála, kubba í rólegheitunum.

En hann er líka mikil félagsvera og unir sér vel á leikskólanum með öllum krökkunum, honum finnst mest til Arons Inga koma, hann situr á móti honum í matartímanum og Aron passar alltaf að Björgvin sé með í öllum leikjum og að það sé allt í lagi með hann. Já það er sko satt að börnin finni margt á sér.

Þegar krakkarnir eru úti að leika, t.d. að róla, þá er Björgvin hrókur alls fagnaðar, puðrar eitthvað úti í loftið eða segir eitthvað og allir krakkarnir liggja í hláturskasti. Svona er þetta stundum inni líka og við matarborðið. Borða meira, tala minna! hahaha.

En hann er stríðinn og mikill húmor í honum, við getum stundum hlegið saman óralengi, algjörlega ómetanlegar stundir.

Björgvin var að hjálpa afa sínum að skreyta jólatréið okkar í dag, hér er útkoman, jólakúlur síðan ég var lítil sem dregur fram margar minningar.



Það er jólakaffi á leikskólanum á morgun, boðið er upp á heitt súkkulaði og piparkökur sem krakkarnir bökuðu og skreyttu, gerist ekki miklu jólalegra það! :)

Gleðilegan jólaundirbúning
Ásdís og Björgvin Arnar

2 comments:

Anonymous said...

Elsku Ásdís mín,
mikið er gaman að geta fylgst dálítið með ykkur hér á blogginu og ég dáist að því endalaust hvað þú ert ótrúlega dugleg þó svo að svona mikið sé á þig lagt. Þið mæðginin eru ávallt í bænum mínum og ég hugsa mikið til ykkar.
1000 kossar til litlu dúllu og stóru dúllu!! hehehe
Love, amma

Anonymous said...

þ.e.a.s.
Olga amma