Björgvin hjálpaði til við að pakka og var í essinu sínu að hafa kassana sem hús.
Mikið af dótinu hans var í kassa og er núna komið inn í skúr þar sem húsið hans er líka, stórt leiksvæði fyrir prinsinn og nýtur hann sín vel.
Afi er dreginn inn í hús að leika, hvað er ekki gert fyrir prinsinn! Þeir eru mestu krútt í heimi saman. Barasta ekkert eins sætt.
Björgvin hefur verið frekar frískur núna í 3 mánuði, það er ekkert dásamlegra, maður þorir varla að minnast á það við hræðslu á að það breytist. Hann hefur þroskast svo mikið og breytist með hverjum deginum. Það eru mikil forréttindi að fá að fylgjast með honum og vera í kringum hann. Hann er svo hlýr og góður drengur, algjör hjartaknúsari.
Ekki er hann farinn að stækka ennþá samt, það er áhyggjuefni, en á meðan margt gott er að gerast þá heldur maður í þolinmæðina, hún þrautir vinnur allar, ekki satt? :)
Nú erum við búin að setja upp jólaljósin og ætlum að draga fram annað skraut á morgun, bæði jafn spennt fyrir jólunum.
Kveðja frá okkur Björgvini Arnari
2 comments:
Frábært. Við krossum fingur og vonumst eftir áframhaldandi góðum tímum!
kv. Norðurvallagengið
frábærar myndir af Björgvini og afanum :) Gott að heyra að prinsinn sé frískur og við biðjum um að svo verði áfram.
Knús og kossar til ykkar,
Ragga
Post a Comment