Ja hérna, hvað það er langt síðan eitthvað var skrifað hér síðast, það er eins gott að bæta úr því!
Björgvin fór í tölvusneiðmynd í seinustu viku og var niðurstaðan mun jákvæðari en í janúar, það gladdi okkar hjarta sem stöndum að honum og þetta gefur okkur von að við getum átt betri tíma framundan.
Þegar börn eru veik þá er í mörgu að snúast og passa upp á. Mér datt í hug að setja upp svona venjulegan dag í okkar lífi til að gefa ykkur smá innlit í daglega amstrið á okkar heimili.
Þegar við vöknum þá byrjum við á því að gefa Björgvini púst úr pústvél sem við fengum í Svíþjóð. Þar fær hann tvær tegundir lungnalyfja sem eru gefin í einu. Ströggl er að gefa honum það í langan tíma þannig að við reynum að telja upp í rúmlega hundrað, mjög hægt. Þetta gerum við líka á kvöldin áður en Björgvin fer að sofa.
En best er að telja þetta upp í tímaröð:
kl 8 - púst, lyf, vítamín og lýsi
Leikskólinn
kl 12 - amma Lalla nær í prinsinn og gefur honum fitu (frá næringafræðingi), stundum kemur Allý og tekur við.
Sofa
kl 14 - lyf
kl 18 - lyf
kl 19:30 - púst, lyf og vítamín, hormónasprauta og tannburstun
Mikil vinna er að gefa honum að borða, yfirleitt þá tekur það um það bið klukkustund í hvert skipti og má helst ekki hafa lengra en tvo tíma á milli til að hann fái nú nóga næringu. Já það er sko þolinmæðisverk, alls ekki má breyta matartímanum í neikvæða stund, allt verður að vera á góðu nótunum.
En prinsinn minn er sko duglegur, talar svo mikið og unir sér vel á leikskólanum. Hér erum við á leið til ömmu og afa í mat (eins og venjulega) með derhúfuna hans afa á höfðinu.
Björgvin fékk lungnabólgubólusetningu um miðjan september og þökkum við fyrir hvern dag sem líður án flensu.
Áðan þegar hann var að fara að sofa og við vorum búin að fara með Faðir vorið, þá sagði hann "mamma, me me er í amen" :)
Kveðja frá Ásdísi og Björgvini Arnari
Monday, October 18, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
það er eins gott að hann eigi svona duglega mömmu :)
Nina
Sammála síðasta kommenti!
Kv. Hrund
Margfalt sammála!
Bjarki
Já, það er mikil vinna að eiga þennan sæta stubb! Knús á ykkur og vertu endilega dugleg að blogga :-)
HÆ dúllur! Alltof langt síðan ég kíkti á síðuna ykkar en mikið er gott að allt gengur svona vel og við vonum að haustið haldi áfram flensulaust ;)
Takk fyrir kveðjurnar og kommentið á síðuna okkar Ásdís mín.
P.s. kanski við náum eitthvað að hittast þegar við komum til landsins í nóvember!!
Post a Comment