Sunday, June 27, 2010

Smjörálfurinn

Björgvin hefur ekki langt að sækja það að vera sjúkur í smjör, það er eiginlega það eina sem hann segir mmmm við þegar hann er að borða.  Um daginn heyrði ég mikið mmmm og fór að gá að honum og þá var hann með smjörvastykki og sleikti upp úr því smjörið. Núna er hann kominn með smá meira advanced aðferð, notar skeið í þessar framkvæmdir.


En við erum að vinna mjög markvisst að því að fita drenginn og er þetta því ekki neitt til að hafa áhyggjur af.

Smjörkveðja
Ásdís og Björgvin Arnar

2 comments:

Emilía Snæbjörg said...

Mmmnammnamm ég elska líka smjör og að fá stóran smjörklump í skeið er nú bara toppurinn á tilverunni!

knús!

Anonymous said...

snillingur!!!!!
Það er frábært að hann borði smjör - því meira því betra svo hann stækki litla gullið, kv. siggamaja