Tuesday, May 25, 2010

Gáfumenni mikið.

Sælt veri fólkið. Við erum glöð og sæl hér í Svölutjörninni, lífið getur ekki verið betra en þegar Björgvin Arnar er hress og frískur. Það gleður hjartað mikið að sjá hann lifna við og þroskast, talar og talar og stríðir öllum út í eitt, sérstaklega Agga frænda, það er skemmtilegast.

Við vorum í grillboði hjá Elvari frænda þegar Björgvin lá í mestu makindum og las Stafsetningarorðabókina með miklu áhuga.



Björgvin er mjög duglegur að vera án bleiu, kemur varla slys fyrir. Hann reyndar sefur alltaf með bleiu en það er svo næsta skref. Sjáum til hvernig honum gengur að vera bleiulaus á leikskólanum. Já hann er kominn í aðlögun á leikskólanum, aftur! Enda var seinasta aðlögun í janúar!


Hér er prinsinn með eldrautt nef eftir heiftarlegt fall fyrir utan hjá ömmu og afa í gær, sprakk vör og alles, það var mikið sjokk fyrir alla fjölskyldumeðlimi. En hann harkaði þetta af sér og varð glaður á ný.

Krúttkveðja til ykkar.
Ásdís og Björgvin Arnar

3 comments:

Anonymous said...

Hann er engum líkur þessi snillingur! :)

Rauða nefið er ekkert til að minnka krúttlevelið...

kv. Bjarki

Anonymous said...

Bara hættur í barnabókmenntunum :) Hann er og verður mikill snillingur :)

Kv. Nína

Anonymous said...

Snillingur :) með ógó sætt nef :)