Thursday, April 1, 2010

Útskrifuð

Við vorum útskrifuð á sunnudaginn, þvílík dásemd! :)

Við fórum svo í eftirskoðun hjá Gylfa í gærmorgun og leist honum mjög vel á Björgvin, var í raun hissa hve vel hann er búinn að ná sér miðað við hvernig ástandið var.

Nú ætlum við að njóta þess að vera heima og slappa af. Markmið næstu mánuði er að hafa Björgvin sem mest heima og láta hann hvílast vel og nærast vel, rjómi og olía út í alla fæðu, já það bara þýðir ekkert annað. Nú ætlar hann að verða stór og sterkur :)

























Hérna erum við komin á rúntinn, mikil gleði í bílnum þegar Skoppa og Skrítla eru á sem Kristján Logi gaf honum.

Gleðilega Páska öll sömul.

Ég vona að sænsku vinir okkar eigi páskaegg frá Ice! :)

Knús og kram
Ásdís og Björgvin Arnar

4 comments:

Linda said...

Til hamingju með að vera útskrifuð!

Við eigum íslensk páskaegg..dásemd :)

Sindri said...

Gleðilega páska!

Sunna, Magnús, Júlía og Emis said...

Til hamingju með útskriftina!

Og gleðilega Páska, hér eiga sem betur fer allir íslensk páskaegg, annars kæmu sko engir Páskar ;)

Anonymous said...

Gleðilega páska elsku Ásdís og Björgvin. Njótið þess að vera heima. Kossar og knús - Fjóla og dætur