Friday, April 23, 2010

Gleðilegt sumar!

Sumarið er víst komið þó að maður finni nú ekki fyrir því, það er kalt úti og svo snjóaði í dag smávegis. En þetta hlýtur að koma hjá okkur á næstu vikum.

Björgvin er búinn að vera hress síðan hann náði sér upp úr barkabólguvírusinum sem hann fékk í seinustu viku. Hann er orkumikill þó svo að hann borði ekki mikið, hann kúgast og kúgast á öllu sem honum er boðið en hann getur samt hrúgað í sig snakki! Þetta er hulin ráðgáta og ekki getur það staðist að hann sé að spila á móður sína, þessi engill! :)

Seinasta laugardag þá gerðist það að hann byrjaði að herma eftir mömmu sinni þegar hún sagði honum að segja eitthvað ákveðið orð, þetta hefur hann aldrei gert áður, þvílíkt þroskamerki, nú segir hann átta, sími, blár, kinn, haka, enni, nebbi, vatn og margt fleira, ótrúlegt hvað orðaforðinn hans hefur vaxið á seinustu viku.

Amma Olga og Nói komu í heimsókn til okkar um daginn og var mikil ánægja með það hjá litla prinsinum, hann var sko í essinu sínu og svo þegar amma varð öskuteppt þá fengum við að sjá þau aftur.


Sjá bræðurna saman, svo sætir, Björgvin er svo ánægður með stóra bróðir sinn að gleðin skín úr andlitinu á honum og hann vill helst að Nói haldi á sér og tali stanslaust við sig.



















Við fórum svo með ömmu og afa að sjá Skoppu og Skrítlu á sumardaginn fyrsta í Borgarleikhúsinu. Þetta var fyrsta leikhúsferðin hans Björgvins og var hann mjög duglegur og hélt athyglinni allan tímann. Skoppa og Skrítla voru svo ánægðar að sjá hann og mundu alveg eftir honum eftir að þær komu að heimsækja hann á spítalann um daginn.


Björgvin var svo ánægður með þetta, vildi fara til þeirra alla sýninguna og svo hló hann alveg upphátt af sumum atriðunum, þetta var algjör snilld.

Gleðilegt sumar elskurnar og takk fyrir veturinn.

Ásdís og Björgvin Arnar

2 comments:

Hólla said...

Hæ,hæ, sætu mæðgin :) Frábært að fá góðar fréttir af Bjögga boy, hann verður orðin altalandi áður en þú veist af...svo ótrúlega gott þegar þau geta farið að segja manni hvað þeim liggur á hjarta þó að maður sakni nú samt stundum "þöglu tímanna"...hehehe! Kannast svo sannarlega við svona litla "snakk-og nammisjúklinga" Skil þetta einum of vel sjálf...hef alltaf verið soldið veik fyrir namminu sjálf svo lillan nýtur góðs af því...! Þau væru góð saman í sollinum Sibba og Bjöggi...:D Kær kveðja Hólla.

Anonymous said...

Rosa flottar myndir hann verður greininlega duglegri með hverjum deginum hann Björgvin :)

Kveðja Ester og co