Tuesday, April 13, 2010

Dulmál

Nú erum við búin að vera heima í hálfan mánuð og hefur gengið vel hingað til. Reyndar er Björgvin Arnar með hita í dag og er ég að bíða eftir hvað gerist með hitaskömmina áður en ég bruna með hann í bæinn, en vonandi nær hann að hrista þetta af sér.

Við höfum verið mikið heima við en um daginn skelltum við okkur með Nínu og Kristjáni Loga á inni leikvöll upp á velli þar sem hægt er að renna sér og skríða inn í leikhluti. Það sló þokkalega í gegn.


Björgvin er heima allan daginn á meðan mamma hans fer í vinnuna, hann er annað hvort hjá ömmu sinni (afi kíkir stundum við) eða hjá Allý. Já við erum sko heppin að eiga góða að. Þegar mamman kemur heim úr vinnunni þá langar hann að fara út og segir:

mamma gilligilli skó, mamma burr, amma og afi hæ

þýðist sem - mamma ég vil fara í skó og út í bíl og keyra til ömmu og afa :)

Er hægt að vera meira krútt??



Læknirinn vill halda honum heima út maí alla vega og ætlar leikskólinn að halda plássinu fyrir okkur þangað hann er tilbúinn að koma aftur.

Risaknús úr Reykjanesbæ
Ásdís og Björgvin Arnar


2 comments:

smaja said...

nei, það er löngu ljóst að það er ekki hægt að vera meira krútt en hann Björgvin Arnar!!!!!
Vona að hitinn sé horfinn.....

knús frá Siggu Maju og co

Linda said...

Snúllinn :-)